spot_img
HomeFréttirÞórsarar í ham

Þórsarar í ham

 Þórsarar voru nú rétt í þessu að reka síðasta naglan í kistu Skallagrímsmanna með 110:91 sigri.  Eins og tölurnar gefa til kynna var varnarleikurinn lagður til hliðar og sóknarleikurinn í hávegum hafður.  Hjá heimamönnum er Benedikt Guðmundsson enn að ná að kreysta 30 stiga leiki út úr Nemanja Sovic.  Nat-Vélin kom svo næstur með 24 stig.  Hjá gestunum var það Grindvíkingurinn “gamli” sem setti niður 35 stig og næstur honum var fyrrum Þórsarinn Grétar Erlendsson með 19 stig. 
 
Þór Þ.-Skallagrímur 110-91 (28-22, 36-11, 27-21, 19-37)
 
Þór Þ.: Nemanja Sovic 30/7 fráköst, Ragnar Ágúst Nathanaelsson 24/12 fráköst, Mike Cook Jr. 20/5 fráköst, Tómas Heiðar Tómasson 19/6 fráköst, Baldur Þór Ragnarsson 10/4 fráköst/12 stoðsendingar, Jón Jökull Þráinsson 3, Halldór Garðar Hermannsson 2, Þorsteinn Már Ragnarsson 2/4 fráköst, Sveinn Hafsteinn Gunnarsson 0, Davíð Arnar Ágústsson 0, Vilhjálmur Atli Björnsson 0, Matthías Orri Elíasson 0.
Skallagrímur: Páll Axel Vilbergsson 35/8 fráköst, Grétar Ingi Erlendsson 19/5 fráköst, Oscar Jermaine Bellfield 18/4 fráköst/9 stoðsendingar, Egill Egilsson 7/10 fráköst, Davíð Guðmundsson 5, Davíð Ásgeirsson 4, Trausti Eiríksson 2, Orri Jónsson 1, Kristján Örn Ómarsson 0, Sigursteinn Orri Hálfdánarson 0, Valur Sigurðsson 0, Sigurður Þórarinsson 0.
Dómarar: Rognvaldur Hreidarsson, Jón Guðmundsson, Jóhannes Páll Friðriksson
 
Fréttir
- Auglýsing -