Þórsarar tóku á móti sigurlausum Völsurum í kvöld í Icelandic Glacial höllinni. Leikurinn fór hægt af stað. Liðin skiptust á að skora og Grétar Ingi Erlendsson kom sterkur inn fyrir Þórsara, setti niður góðar körfur í teignum og tók nokkur fráköst. Valsarar komust svo betur inn í leikinn og komust í 6-11 þegar um 3 og hálf mínúta var liðin af leiknum. Þá komu Þórsarar til baka og komust yfir. Heimamenn héldu forystunni til loka leikhlutans. Staðan eftir 1. Leikhluta var 20-15 heimamönnum í vil.
Þórsara komu sterkir inn í 2. leikhluta og komust í 26-17. Valsarar neituðu að gefast upp og komu til baka og voru yfir í hálfleik 39-35. Heimamenn virtust áhugalausir og greinilegt vanmat var í gangi.
Þórsarar jöfnuðu leikinn fljótlega eftir hálfleikinn og liðin skiptust á að skora. Kristinn Ólafsson var að spila mjög á þessum tímapunkti í leiknum og skoraði nánast að vild. Þórsarar ekki að spila sína góðu vörn og Valsmenn gengu á lagið og komust mest 13 stigum yfir í lok leikhlutans. Staðan 50-63 fyrir Val.
Þórsarar reyndu í byrjun fjórða leikhluta að koma til baka en Valsarar neituðu að gefast upp. Valsarar náðu að halda í kringum 10 stiga forskoti þangað til um 5 mínútur voru eftir að þá kom Baldur Þór og kveikti í sínu liði með þriggja stiga körfu og Darri kom með aðra strax á eftir og munurinn 3 stig á liðunum. Raggi Gylfa náði að svara fyrir Valsmenn með þriggjastiga körfu. Þá komu tveir stórir þristar fyrst frá Hairston og svo Blago sem jöfnuðu leikinn, þegar um tvær og hálfmínúta voru til leiksloka. Þórsarar sigldu svo sigrinum í höfn.
Niðurstaðan var 4 stiga sigur heimamanna 80-76. Ekki fallegur leikur hjá heimamönnum. Valsarar eiga hrós skilið fyrir sinn leik og þá sérstaklega Kristinn Ólafsson og Ragnar Gylfason sem voru mjög góðir í þessum leik.
Dómarar leiksins voru feðgarnir Kristinn Óskarsson og Ísak Ernir Kristinsson. Þeir áttu frábæran leik og höfðu góð tök á leiknum allan tímann. Þess má geta að þetta var fyrsti leikurinn hjá Ísak í úrvalsdeild og stóð hann sig frábærlega. Hann á framtíðina fyrir sér. Þá var þetta, eins og áður hefur komið fram í dag, í fyrsta sinn sem feðgar dæma úrvalsdeildarleik saman hér á landi.
Atkvæðamestir hjá Þór voru Govens með 19 stig, 10 fráköst og 6 stoð. Blagoj með 15 stig og 7 fráköst. Hairston með 12 stig og 6 fráköst. Gummi jóns með 9 stig. Baldur Þór með 9 stig, 6 stoðsendingar og 3 fráköst. Grétar með 8 stig og 5 fráköst. Darri með 8 stig.
Atkvæðamestir hjá Val voru Marvin Jackson með 20 stig og 7 fráköst. Kristinn Ólafsson með 18 stig og 5 fráköst. Ragnar Gylfason með 16 stig og 3 stoð. Birgir Péturs með 13 stig og 13 fráköst. Hamid Dicko með 5 stig og 5 fráköst. Benedikt Blöndal með 4 stig og 3 fráköst.
Mynd/ Karl Einar Óskarsson – Það urðu tímamót í Þorlákshöfn í kvöld þegar feðgarnir Kristinn og Ísak dæmdu viðureign Þórs og Vals.
Umfjöllun/ Hákon Hjartarson




