HomeBónus deildinBónus deild karlaÞórsarar flengdir í Ásgarði

Þórsarar flengdir í Ásgarði

Það er oft þannig að eftir landsleikjahlé getur allt gerst. Liðin hafa haft tækifæri til þess að endurstilla sig, skerpa á áherslum og jafnvel mæta vel hrist saman eftir móralskan hitting í byrjun landsleikjahlésins.

Í Ásgarði í kvöld var því ákveðin eftirvænting í loftinu. Sú eftirvænting breyttist þó hratt í eftirvæntingu eftir því að slátrun Þórsara yrði lokið, því ljóst var strax á upphafsmínútunum að hér yrðu ruslamínúturnar fleiri en aðrar mínútur.

Stjörnumenn mættu brjálaðir til leiks, náðu fljótlega 10 stiga forystu sem varð svo 20 stig og svo 30 stig í hálfleik og leiknum lokið. Það sem eftir lifði leiks var svo ekkert sérstaklega mikið fyrir augað. Stjörnumenn leyfðu ungum mönnum að spreyta sig sem og Þórsarar, svo vonandi fengu þeir foreldrar yngri leikmanna sem ferðuðust frá Þorlákshöfn að berja börn sín augum á gólfinu í Ásgarði. Þórsarar eru stálheppnir að ÍR rankaði við sér í lokin og vann ÍA, annars væru þeir í fallsæti.

Hjá Stjörnunni skoraði Luka Gasic 30 stig en hjá Þór var Djordje Dzeletovic með 16 stig.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -