spot_img
HomeFréttirÞór leiddi frá upphafi til enda gegn Hetti

Þór leiddi frá upphafi til enda gegn Hetti

 
Þórsarar náðu að koma sér aftur á sigurbraut þegar þeir lögðu Hött að velli, 93-77 þegar liðin mættust 9. umferð 1. deild karla í körfuknattleik. Heimamenn voru ávallt skrefinu á undan gestunum án þess þó að geta slitið sig frá þeim. Það var ekki fyrr en í fjórða leikhluta sem heimamenn náðu að slíta sig frá Hetti með góðri vörn og fögnuðu því , 93-77 sigri.
Leikurinn byrjaði frekar rólega en gestirnir frá Egilsstöðum byrjuðu þó ögn betur ef eitthvað var. Heimamenn náðu þó fljótt áttum og náðu yfirhöndinni . Bæði lið gerðu sig þó sekan um nokkur mistök en Þórsarar leiddu þó eftir fyrsta fjórðung, 21:18. Þórsarar voru áfram með yfirhöndina í öðrum leikhluta en gestirnir réðu illa við heimamenn í teignum en þeir félagar Ólafur Torfason og Óðinn Ásgeirsson voru sterkir undir körfunni. En Ólafur Torfason tók m.a. 20 fráköst og Óðinn 17. Með ágætri vörn náðu heimamenn að bæta örlítið við forskot sitt og fóru með níu stiga forskot í hálfleik.
 
Þórsarar byrjuðu síðari hálfleikinn af miklum krafti, nýttu sér mistök gestanna og náðu 13 stiga forskoti áður en gestirnir tóku leikhlé. Gestirnir virtust vakna í leikhléinu og mættu grimmari til leiks á ný. Smá saman náðu gestirnir að minnka forskot heimamanna niður í þrjú stig og hélt sá munur alveg til loka þriðja fjórðungs. Undir lok þriðja fjórðungs urðu gestirnir fyrir áfalli þegar Daniel Terrel fékk tæknivillu og þar með sína fimmtu villu í leiknum. Þegar leiktíminn var að klárast var Daniel ekki alveg ánægður með dómgæsluna og lét einhver orð falla. Dómarar leiksins verðlaunuðu Daniel með tæknivillu, afar stór og dýr mistök hjá Daniel. Þórsarar mættu grimmari til leiks í fjórða leikhluta og ætluðu sér greinilega að klára leikinn. Áfram áttu gestirnir í miklum vandræðum með heimamenn innan teigs. Með sterkri vörn náðu heimamenn slíta sig frá gestunum og fögnuðu að lokum sigri, 93-77 og komust þar með á ný á sigurbraut.
 
 
 
Umfjöllun: Sölmundur Karl Pálsson
Fréttir
- Auglýsing -