Bjarki Ármann Oddsson var ráðinn þjálfari Þórs á Akureyri en á síðustu leiktíð lék hann með Hetti á Egilsstöðum. Akureyringar höfnuðu í 7. sæti 1. deildar á síðasta tímabili og misstu þar naumlega af sæti í úrslitakeppninni. Bjarki er mjög hlynntur 4-1 reglunni og segir möguleika Þórsara á komandi vetri vera nokkuð góða.
Hvernig hefur sumarið gengið?
Sumarið hefur verið mjög rólegt í körfunni fyrir norðan, það var gengið seint frá ráðningunni hjá mér og þar af leiðandi var margt sem ég hefði vilja gera öðruvísi. Strákarnir voru flestir þó í einhverjum bolta í allt sumar.
Hvaða breytingar hafa orðið á hópnum?
Engar verulegar breytingar.
Hvernig leggst 1. deildin í þig undir 4-1 reglunni?
Ég er mjög hlynntur 4 plús 1 eða 3 plús 2 og er búinn að tala fyrir þessu í mörg ár eða allt frá því að ég vissi fyrst af þessari reglu þegar félagi minn Óðinn Ásgeirsson spilaði í Noregi, en hann var einmitt ,,fórnarlamb" reglunnar. Það er eitthvað mikið að íslenskum körfubolta þegar tugir milljóna fara á ári í erlenda leikmenn en við höfum ekki efni á því að halda úti landsliði. Ég bara spyr, þrír útlendingar í 1. deildarliðum, er eitthvað að?
Við hverju býst þú á næstu leiktíð, hverjir finnst þér líklegir í toppbaráttuna?
Það yrði nú skrýtið ef Haukar myndu taka upp á því að tapa eins og einum leik í vetur. Að öðru leyti held ég að flestir geti unnið flesta en ekki allir.
Hvernig metur þú möguleika þíns liðs?
Ég met möguleika míns liðs vera nokkuð góða.
Þór Akureyri hefur leik í 1. deild þann 11. október þegar Bjarki og félagar halda austur á Egilsstaði og mæta Hetti í fyrsta leik deildarinnar.