HomeNeðri deildir1. deild kvennaÞór Akureyri fór með öruggan sigur af hólmi í Borgarnesi

Þór Akureyri fór með öruggan sigur af hólmi í Borgarnesi

Þór Akureyri sótti öruggan stórsigur gegn nýju liði Skallagríms í 1. deild kvenna í Fjósinu í dag þar sem lokatölur urðu 108–56 gestunum að norðan í vil. Norðankonur náðu tökum á leiknum strax í fyrsta leikhluta og leiddu með 24 stiga mun í hálfleik, 55–33. Þórsarar héldu áfram að auka forskot sitt í síðari hálfleiknum og sigldu að lokum öruggum 52 stiga sigri í höfn frammi fyrir 113 áhorfendum.

Emma Karólína Snæbjarnardóttir átti stórleik í liði Þórs og skilaði glæsilegri tröllatvennu; 33 stigum, 10 fráköstum, fimm stoðsendingum og sex stolnum boltum. Ksenija Kuzmanovic bætti við 17 stigum og fimm stolnum boltum og Natalía Mist Þráinsdóttir Norðdahl skoraði 16 stig. Þá átti Nile Miller einnig öflugan leik með 14 stig, 14 fráköst og fimm varin skot.

Hjá heimakonum í Skallagrími var Embla Kristínardóttir stigahæst með 20 stig og níu fráköst, en Rakel María Pálmadóttir átti sömuleiðis fína tvennu með 14 stigum og 11 fráköstum. Viktoría Rós Ólafsdóttir skilaði 11 stigum og fimm fráköstum fyrir Borgnesinga.

Fréttir
- Auglýsing -