spot_img
HomeFréttirÞór Akureyri deildarmeistari!

Þór Akureyri deildarmeistari!

 

Þór Akureyri tryggði sér í dag deildarmeistaratitilinn í fyrstu deild kvenna með 96-66 sigri á Fjölni í Grafarvogi. Liðið á enn einn leik eftir af deildarkeppninni (gegn KR þann 11. næstkomandi) en er, sökum innbyrðisviðureignar, í 1. sæti deildarinnar, jafnt að stigum og Breiðablik (sem er búið með sína leiki)

 

Ólíkt því fyrirkomulagi sem er í 1. deild karla, fer ekkert lið beint upp úr 1. deild kvenna. Þess í stað munu tvö efstu liðin, Þór og Breiðablik leika úrslitaeinvígi um sæti í Dominos deildinni að ári. Ljóst er að um hörkuviðureignir verður að ræða, en áður hafa liðin mæst í fjögur skipti í vetur og skipt með sér vinningum, Þór sigrað tvo og Breiðablik tvo.

 

Staðan í 1. deild kvenna

Myndasafn

Tölfræði leiks

 

Myndir / Bára Dröfn

Fréttir
- Auglýsing -