spot_img
HomeFréttirÞór Ak og Breiðablik með tryggt sæti í úrslitaeinvíginu

Þór Ak og Breiðablik með tryggt sæti í úrslitaeinvíginu

Eingöngu þrír leikir eru eftir af hinni skrautlegu 1. deild kvenna. Tveir leikir fóru fram í deildinni í gær og í dag og er nú ljóst hvaða lið munu leika til úrslita í úrslitakeppninni. 

 

Í gær vann Breiðablik góðan sigur á KR í vesturbænum. Blikastúlkur mættu einfaldlega mun einbeittari og sterkari til leiks og leiddu frá upphafsmínútunum. Munurinn var orðinn yfir 15 stig í fyrri hálfleik og átti KR engin vopn í búrinu til að minnka muninn eftir það. 

 

Breiðablik bætti enn í í seinni hálfleik og lokastaðan varð 61-45 þegar allt var talið. Þær Telma Lind og Ísabella Ósk fóru fyrir sínu liði í gær. Telma með 16 stig og 4 stolna bolta en hin 19 ára Ísabella Ósk var með 8 stig og 12 fráköst, þar af fimm sóknarfráköst. Hjá KR var Þorbjörg Andrea öflugust með 9 stig, 7 fráköst og 3 stolna bolta. Aðrir leikmenn stóðu ekki uppúr en KR hitti afar illa í leiknum. 

 

KR er þar sem fast í þriðja sæti deildarinnar og eiga eftir að leika tvo leiki gegn Fjölni og Þór Ak. Liðið getur ekki náð Breiðablik að stigum og þar með eru kópavogsbúar búnir að tryggja sig í umspilið um sæti í efstu deild að ári.

 

Rétt í þessu var svo að ljúka leik Fjölnis og Þórs Ak. Leiknum lauk með 56-79 sigri Akureyringa en tölfræði úr leiknum hefur ekki borist. Þór á eftir að leika tvo leiki einnig og getur komist í efsta sæti deildarinnar með sigri í þeim báðum. Fjölnir aftur á móti er enn án sigurs í deildinni. Liðin mætast að öðru sinni á morgun, sunnudaginn 5. mars kl 14:00 í Dalhúsum. 

 

Þar með er ljóst að Þór Ak-Breiðablik mætast í úrslitaeinvígi deildarinnar. Sigurvegarinn fær sæti í Dominos deild kvenna að ári. Einhverjar hugmyndir eru uppi um að fjölga liðum í efstu deild og því möguleiki að bæði liðin muni leika þar að næsta ári. Það verður hinsvegar ekki klárt fyrr en í maí svo hvorugt liðið vill sjálfsagt treysta á það. Því er von á frábæru einvígi milli liðanna sem hefst eftir 17. mars.

 

Staðan í 1. deild kvenna.

Úrslit sólarhringsins:

 

KR 45-61 Breiðablik

Fjölnir 56-79 Þór Ak

Fréttir
- Auglýsing -