HomeFréttirÞjóðverjar skelltu Ísraelsmönnum: Fyrsta keppnisdegi lokið á EM

Þjóðverjar skelltu Ísraelsmönnum: Fyrsta keppnisdegi lokið á EM

 
Heilir 12 leikir fóru fram á Evrópumeistaramótinu í Litháen í dag á þessum fyrsta keppnisdegi mótsins. Spánn og Serbía nældu sér í góða sigra, Spánn gegn Póllandi og Serbar gegn Ítölum. Tíu aðrir leikir voru á dagskránni.
Úrslit dagsins:
 
Spánn 83-78 Pólland
Serbía 80-68 Ítalía
 
Svartfjallaland 70-65 Makedónía
Vladimir Dasic gerði 20 stig og tók 16 fráköst í liði Svartfellinga. Bo McCalebb gerði 17 stig, tók 4 fráköst og gaf 4 stoðsendingar hjá Makedónum.
 
Belgía 59-81 Georgía
Tvö þúsund Georgíumenn fylgdust með í Litháen þegar þeirra menn unnu sinn fyrsta sigur í lokakeppni EM. Christophe Beghin gerði 13 stig og tók 6 fráköst í liði Belga en hjá Georgíumönnum var Zaza Pachulia, leikmaður Atlanta Hawks í NBA deildinni, með 16 stig og 3 fráköst.
 
Tyrkland jarðaði Portúgal 79-56 en Portúgalir ásamt Finnum voru eitt af tveimur síðustu liðunum til að tryggja sér sæti í keppninni. Frakkar áttu ekki í teljandi vandræðum með Letta, lokatölur 89-78 þar sem Tony Parker gerði 31 stig og gaf 7 stoðsendingar fyrir Frakka. Janis Blums gerði 32 stig í liði Letta.
 
Grikkir lögðu Bosníumenn 76-67 þar sem Kostas Koufos gerði 10 stig og tók 10 fráköst í liði Grikkja en hjá Bosníumönnum var Elmedin Kikanovic með 15 stig og 4 fráköst. Slóvenar lögðu svo Búlgara 67-59 og heimamenn í Litháen höfðu 80-69 sigur á Bretum. Luol Deng gerði 25 stig og tók 10 fráköst í liði Breta.
 
Þjóðverjar völtuðu yfir Ísraelsmenn 91-64 þar sem Dirk Nowitzki minnti á sig með 25 stig, 3 fráköst og 3 stoðsendingar. Frændur okkar Finnar töpuðu svo naumlega 84-79 gegn Króötum. Shawn Huff var stigahæstur í finnska liðinu með 11 stig en Bojan Bogdanovic gerði 27 stig og tók 7 fráköst í liði Króata.
 
Rússar og Úkraínumenn mættust svo í lokaleik dagsins þar sem Rússar höfðu 73-64 sigur. Andrei Kirilenko gerði 20 stig og tók 11 fráköst í rússneska liðinu en hjá Úkraínumönnum var Serhiy Lishchuck með 13 stig og 4 fráköst. Á vefsíðu FIBA Europe er fullyrt að Andrei Kirilenko hafi átt sinn besta landsleik í liði Rússa
 
Mynd/ FIBA EUROPE: Dirk fór fyrir sínum mönnum í þýska liðinu í dag.
 
Fréttir
- Auglýsing -