Á dögunum var ljóst að eingöngu níu lið myndu leika í 1. deild karla á komandi tímabili en Hrunamenn/Laugdælir sem höfðu unnið 2. deild fyrr á árinu drógu lið sitt úr leik. Fyrir vikið gaf KKÍ það út að ekkert lið myndi falla úr 1. deildinni og leikin skildi þreföld umferð.
Lið Gnúpverja hefur komist upp um tvær deildir á tveimur síðustu árum og uppgangurinn greinilega mikið. Liðið er skipað leikmönnum úr öllum áttum en búist var við því að Gnúpverjar yrðu í fallbaráttunni í 1. deildinni. Nú þegar ljóst er að ekkert lið hefur fallið eru Gnúpverjar því búnir að tryggja áframhaldandi sæti sitt í 1. deild að ári, það áður en að deildin hefst.
Karfan.is heyrði í Maté Dalmay þjálfara Gnúpverja og fékk viðbrögð hans við þessum tíðindum en liðin eru að uppruna frá sömu slóðum landfræðilega.
„Það er auðvitað bara hundleiðinlegt að svona fór. Við erum nokkrir frá Flùðum og það var spennandi markmið að reyna vinna þá í vetur eftir að þeir fóru illa með okkur í úrslitum 2.deildar í fyrra.“ sagði Maté um að Hrunamenn/Laugdælir hefðu dregið lið sitt úr keppni og bætti við.
„Svona er þetta og sætið í deildinni tryggt í september, við erum búnir að standa í ströngu síðan í apríl og tökum þessu eins og þremur sigurleikjum gegn Hrunamenn/Laugdælum á komandi tímabili.“
Maté viðurkenndi að þetta þýddi að liðið þyrfti að setja sér ný markmið og jafnvel stefna enn hærra.
„Þetta gerir það að verkjum að við setjum ný markmið, engin fallbarátta í vetur. Það stefnir enginn á 6. eða 7. sætið, skiptir engu máli hvort þú endir 6. eða 9. eftir tímabilið. Fimmta sætið gefur sæti í úrslitakeppni og það er eina sem meikar sense, annars værum við bara með til að hafa gaman, sem við reyndar ætlum að gera.“ sagði Maté.
Gnúpverjar hafa vakið mikla athygli í sumar fyrir sölu sína á ársmiðum fyrir komandi tímabil. Í stað þess að selja venjulega ársmiða á alla leiki liðsins seldi félagið fallegar derhúfur en með þeim fylgdi ársmiði. Liðið fer mikinn á samfélagsmiðlum og ætlar sér greinilega að gera enn stærri hluti á næstunni en Maté Dalmey endaði viðtalið á orðunum: „Það er svo væntanleg sprengja frá okkur í vikunni, bìðið spenntir.“




