HomeNeðri deildir1. deild karlaÞjálfarar og leikmenn sektaðir fyrir uppsafnaðar tæknivillur

Þjálfarar og leikmenn sektaðir fyrir uppsafnaðar tæknivillur

Aga- og úrskurðarnefnd hefur birt úrskurði sína vegna fjölda tæknivilla sem leikmenn og þjálfarar hafa hlotið á yfirstandandi tímabili. Alls voru sjö aðilar úrskurðaðir til sektargreiðslna að þessu sinni með vísan til reglugerðar um aga- og úrskurðarmál, þar sem fjöldi skráðra tæknivilla hjá viðkomandi hafði náð tilteknum mörkum.

Hæstu sektina hlýtur Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, sem þarf að greiða 50 þúsund krónur vegna átta tæknivilla á tímabilinu. Þá voru fjórir aðrir þjálfarar og einn leikmaður sektaðir um 30 þúsund krónur hver fyrir að hafa hlotið sex tæknivillur. Þeir eru þjálfararnir Jamil Abiad hjá Val, Gunnlaugur Smárason hjá Snæfelli og Hrafn Kristjánsson hjá Breiðabliki, auk Ingva Þórs Guðmundssonar, leikmanns Ármanns.

Að síðustu voru tveir leikmenn sektaðir um 20 þúsund krónur hvor fyrir að hafa safnað fjórum tæknivillum það sem af er vetri. Það eru þeir Snjólfur Björnsson úr Snæfelli og Matt Treacy, leikmaður Skallagríms. Niðurstöðurnar byggja allar á ákvæði q. liðar 13. greinar reglugerðar um aga- og úrskurðarmál sem kveður á um sjálfkrafa sektargreiðslur þegar ákveðnum fjölda villna er náð.

Fréttir
- Auglýsing -