HomeNeðri deildir1. deild karlaÞjálfarabreytingar fyrir norðan

Þjálfarabreytingar fyrir norðan

Körfuknattleiksdeild Þórs tilkynnti í dag um breytingar á þjálfarateymi meistaraflokks karla. Ricardo Gonzáles Dávila, betur þekktur sem Richi, lætur af störfum sem aðalþjálfari liðsins eftir samkomulag við stjórn félagsins. Richi mun þó ekki hverfa á braut því hann mun áfram sinna mikilvægu starfi fyrir deildina við þjálfun yngri flokka félagsins.

Í stað hans kemur Þröstur Léó Jóhannsson, sem flestum körfuboltaáhugamönnum er kunnugur. Þröstur tekur við liðinu út yfirstandandi leiktíð og mætir til leiks með mikla reynslu og skýra sýn á framhaldið. Stjórn og leikmenn Þórs hafa þegar boðið Þröst hjartanlega velkominn og ríkir mikil eftirvænting fyrir samstarfinu.

Að sögn forráðamanna eru þessar breytingar gerðar í góðu samráði og liður í því að efla starf félagsins til framtíðar. Markmiðið er skýrt: að styrkja meistaraflokkinn og halda áfram að byggja upp metnaðarfullt körfuknattleikssamfélag á grunni öflugs yngri flokka starfs.

Fréttir
- Auglýsing -