Íslenska liðið mátti þola stórt tap gegn sterku liði Tyrkja í Laugardalshöllinni í kvöld þar sem lokatölur urðu 73–110.
Tyrkneska liðið náði snemma undirtökunum, leiddu með 23 stigum í hálfleik og héldu forystunni örugglega allt til leiksloka. Hjá Íslandi voru Kristinn Pálsson og Martin Hermannsson stigahæstir með 11 stig hvor, Styrmir Snær Þrastarson skoraði 10 stig og Kári Jónsson var með 6 stig.
Kári Jónsson kom í viðtal eftir leik í Laugardalshöllinni þar sem hann fór yfir leikinn og greindi gang mála. Viðtalið við Kára má sjá í spilaranum hér að neðan.




