HomeFréttirÞetta eru liðin sem verða með Íslandi í riðil í seinni hluta...

Þetta eru liðin sem verða með Íslandi í riðil í seinni hluta undankeppni HM 2027

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta er í afar krefjandi sex liða J-riðil í seinni hluta undankeppni HM 2027, þar sem liðið mætir sumum af sterkustu körfuboltaþjóðum heims.

Strákarnir okkar munu etja kappi við Tyrkland, Serbíu og Bosníu og Hersegóvínu. Ljóst er að verkefnið verður ærið en á sama tíma gríðarlega spennandi fyrir íslenska stuðningsmenn að fá þessar stórþjóðir til landsins.

J-riðill
Tyrkland
Ítalía
Serbía
Litháen
Ísland
Bosnía og Hersegóvína

Aðeins þrjú efstu liðin úr hverjum hinna fjögurra riðla í þessum öðrum hluta keppninnar tryggja sér farseðilinn á sjálft heimsmeistaramótið, sem þýðir að alls tólf lið frá Evrópu komast áfram. Það verður því hart barist um hvert einasta stig í J-riðlinum þegar þessi stórkostlega körfuboltaveisla brestur á og íslenska liðið freistar þess að tryggja sér sögulegan árangur.

Hér má sjá stöðuna í riðil Íslands

Strákarnir okkar tryggðu sér sæti á þessu stigi undankeppni heimsmeistaramótsins árið 2027 eftir að fyrsta hlutanum lauk formlega á dögunum. Alls komust tuttugu og fjórar Evrópuþjóðir áfram af þeim þrjátíu og tveimur sem hófu leik og er draumurinn um sæti á stórmótinu í Katar því áfram lifandi. Úrslitin úr fyrri hlutanum taka liðin með sér inn í þessa nýju deild þar sem Ísland var með þrjá sigra og þrjú töp.

Leikirnir í J-riðlinum munu fara fram í þremur mismunandi gluggum á næstu misserum. Fyrstu leikirnir verða leiknir í ágúst á þessu ári, en hinir tveir gluggarnir fara fram í nóvember á þessu ári og loks í febrúar á næsta ári.

Hérna er heimasíða mótsins

Fréttir
- Auglýsing -