Harður slagur er framundan í úrslitakeppni 1. deildar karla.
Úrslitakeppnin í 1. deild karla brestur á í næstu viku. Þar munu átta lið heyja baráttu um eitt laust sæti í Bónus deildinni fyrir næsta tímabil. Fyrstu leikirnir fara fram 27. og 28. mars, en vinna þarf þrjá leiki í hverri rimmu til að tryggja sig áfram.
Eftirfarandi lið mætast í 8 liða úrslitum:
• Sindri (2) – Snæfell (9)
• Haukar (3) – Selfoss (8)
• Fjölnir (4) – KV (7)
• Breiðablik (5) – Skallagrímur (6)
Þessi spennandi lokatörn hefst í kjölfar þess að lið Hattar tryggði sér sigur í deildinni á útivelli síðastliðið föstudagskvöld, 20. mars.





