HomeNeðri deildir1. deild karlaÞetta eru liðin sem mætast í undanúrslitum fyrstu deildar karla

Þetta eru liðin sem mætast í undanúrslitum fyrstu deildar karla

Eftir æsilega úrslitaviðureign í Ólafssal er ljóst hvaða lið munu berjast um laust sæti í Bónus deildinni á næsta tímabili. Selfoss varð síðasta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum eftir sigur gegn Haukum í oddaleik. Þar með er ljóst að fjögur lið standa eftir í baráttunni um að fylgja Hetti upp um deild.

Höttur tryggði sér beint sæti í Bónus deildinni með því að enda í efsta sæti deildarinnar eftir 22 leiki. Liðið sýndi mikinn stöðugleika í vetur og endaði með 18 sigra og aðeins 4 töp, sem gaf þeim 36 stig í lokastöðunni.

Í undanúrslitunum mætast annars vegar Sindri og Selfoss. Sindri endaði deildarkeppnina í öðru sæti með 17 sigra og mætir þar spræku liði Selfyssinga sem hafnaði í áttunda sæti en hefur sýnt það í úrslitakeppninni að þeir geta lagt hvaða lið sem er.

Hin undanúrslitaviðureignin er á milli Breiðabliks og KV. Blikar enduðu í fimmta sæti deildarinnar en KV í því sjöunda. Bæði lið hafa sýnt mikla seiglu í 8-liða úrslitunum og má búast við hörkueinvígi þar sem bæði lið eyja á að komast aftur í hóp þeirra bestu.

Fréttir
- Auglýsing -