Úrslit Bónus deildar karla hefjast í kvöld með leik Tindastóls og Stjörnunnar í Síkinu á Sauðárkróki.
Vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn, en í deildarkeppni Bónus deildarinnar hafði Tindastóll endað í efsta sætinu og Stjarnan öðru.
Fari svo að Tindastóll vinni titilinn í þessu úrslitaeinvígi verður um annan Íslandsmeistaratitil liðsins að ræða á meðan Stjarnan eygir þess von að vinna titilinn í fyrsta skipti.
Allir leikir úrslitakeppninnar verða í beinni á Stöð 2 Sport.
Dagskrá leikja má sjá hér
Leikjaplanið verður eftirfarandi:
(1) Tindastóll – (2) Stjarnan
Leikur 1 8. maí 20:15 Tindastóll – Stjarnan
Leikur 2 11. maí 20:15 Stjarnan – Tindastóll
Leikur 3 14. maí 19:15 Tindastóll – Stjarnan
Leikur 4 18. maí 19:15 Stjarnan – Tindastóll *ef með þarf
Leikur 5 21. maí 19:15 Tindastóll – Stjarnan *ef með þarf



