Aukasendingin fékk Mumma Jones í kaffi til að fara yfir fréttir vikunnar, verðlaunahátíð KKÍ, úrslitakeppni Bónus deildar karla, hverjir fá mesta hitann í íslenskum körfubolta og margt fleira.
Hérna er Aukasendingin á Spotify
Þá fór Aukasendingin yfir það sem bar hæst á körfuboltatímabilinu og dró fram þá sem stóðu uppi sem helstu sigurvegararnir. Efst á blaði er Jóhann Þór Ólafsson, en árangur hans sem þjálfari Grindavíkur hefur verið undraverður. Fast á hæla honum fylgja þeir Þórir Þorbjarnarson og Egill Ástráðsson, sem báðir hafa sett mark sitt á leikinn með afgerandi hætti. Þórir sem leikmaður ársins í Bónus deildinni og Egill sem formaður KR.
Auk einstaklinga er vikið að eftirminnilegum afrekum. Evrópuævintýri Stólanna skipar þriðja sætið og sýnir hversu mikilvæg þátttaka í alþjóðlegum keppnum er fyrir íslensk félög. Skemmtilegir punktar eins og peysan hans Steinars Kaldals og staða dómarastéttarinnar fá einnig pláss.

Top 5: Sigurvegarar tímabilsins
- 1. Jóhann Þór Ólafsson (Grindavík)
- 2. Þórir Þorbjarnarson / Egill Ástráðsson (KR)
- 3. Evrópu ævintýri Stólanna
- 4. Peysan hans Steinars Kaldal / Kalli (Ármann)
- 5. Dómararastéttin
Næstir á lista: Seth LeDay (Stjarnan), Jordan Semple (Grindavík) og Viðar Örn (Höttur)




