HomeFréttirÞetta er 12 leikmanna hópur Íslands fyrir leikinn annað kvöld gegn Ítalíu

Þetta er 12 leikmanna hópur Íslands fyrir leikinn annað kvöld gegn Ítalíu

Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik mætir Ítalíu í Laugardalshöll annað kvöld í mikilvægum leik í undankeppni HM 2027. Íslenska liðið vann fyrri leik þessara liða á Ítalíu með 76 stigum gegn 81, og er búist við miklum fjölda áhorfenda í Höllina enda fá áhorfendur hér á landi sjaldan tækifæri til að sjá jafn marga leikmenn úr hæsta gæðaflokki á einu bretti.

Ítalski hópurinn er talsvert breyttur en geysisterkur, og er leikstjórnandinn Niccolò Mannion með NBA-reynslu stærsta nafn liðsins. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og verður í beinni útsendingu á aðalrás RÚV, en miðasala fer fram í gegnum smáforritið Stubb.

Hérna er heimasíða mótsins

Íslenski hópurinn

  • Hilmar Smári Henningsson – Stjarnan
  • Jón Axel Guðmundsson – Burgos
  • Þórir Guðmundur Þorbjarnarson – KR
  • Elvar Már Friðriksson – Tenerife
  • Almar Orri Atlason – Miami OH
  • Kári Jónsson – Valur
  • Kristinn Pálsson – Alicante
  • Martin Hermannsson – Alba Berlín
  • Bragi Guðmundsson – Keflavík
  • Tryggvi Snær Hlinason – Bilbao
  • Styrmir Snær Þrastarson – Zamora
  • Bjarni Guðmann Jónsson – Stjarnan
Fréttir
- Auglýsing -