spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaÞétt dagskrá á Meistaravöllum er KR mætir ÍA - Ágóði af leik...

Þétt dagskrá á Meistaravöllum er KR mætir ÍA – Ágóði af leik rennur til styrktar Píeta

KR tekur á móti ÍA kl. 19:15 á Meistaravöllum annað kvöld í fyrstu deild karla.

Hvetur félagið öll til að mæta á leikinn og um leið styðja gott málefni, en ágóði af miðasölu leiksins mun renna til styrktar Pieta samtökunum. Miðasala er í fullum gangi í gegnum Stubb appið.

Grillið verður opið frá klukkan 18:00 inni í félagsheimili þeirra KR-inga, Una Torfa spilar fyrir leik og Ingvar Ákason (Byssan) verður með uppistand eftir leik og hvetur félagið alla til þess að koma, gera sér glaðan dag og styrkja gott málefni í leiðinni.

Fréttir
- Auglýsing -