HomeBónus deildinBónus deild karlaÞessir leikmenn þurfa að panta sér flugmiða heim

Þessir leikmenn þurfa að panta sér flugmiða heim

Umgjörðin í körfuboltanum er miskunnarlaus og nú hafa stjórnendur hlaðvarpsþáttarins Run & Gun opinberað sinn fyrsta „You Go Airport“ lista tímabilsins.

Um er að ræða lista yfir þá erlendu leikmenn sem þykja ekki hafa staðið undir væntingum í upphafi móts og eru komnir á afar hálan ís hjá sínum félögum.  

Á listanum má finna níu leikmenn sem hafa valdið vonbrigðum. Efstur á blaði er Austin Price hjá Stjörnunni, en í kjölfar hans koma Jarrett Bryant úr ÍR og Ármenningarnir Kinyon Hodges og Oliver Bieshaar. Þá eru Aleksa Ilic úr Njarðvík, Ade Murkey hjá Tindastóli, Milos Stajcic hjá Stjörnunni, Aleksandar Pantelic úr Hetti og Martins Meiers úr Sindra einnig nefndir til sögunnar sem leikmenn sem gætu þurft að fara að pakka niður í töskur ef frammistaðan lagast ekki hratt.  

Listinn og frammistaða leikmannanna eru tekin til ítarlegrar krufningar í sjöunda þætti Run & Gun, þar sem hitað er upp fyrir aðra umferðina. Umræðuna um flugvallarlistann má heyra í þættinum sjálfum, en hann er nú aðgengilegur á YouTube og öllum hlaðvarpsveitum.  

Hægt er að hlusta og horfa á þáttinn hér að neðan

Fréttir
- Auglýsing -