spot_img
HomeFréttirÞessir 12 verða í liði Íslands gegn Hollandi í kvöld

Þessir 12 verða í liði Íslands gegn Hollandi í kvöld

Ísland tekur á móti Hollandi kl. 20:00 í Ólafssal í kvöld í lokaleik sínum í fyrri hluta undankeppni HM 2023. Samkvæmt fréttum er orðið uppselt á leikinn, en hann verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV2.

Hérna er heimasíða mótsins

Craig Pedersen hefur valið þá 12 leikmenn sem verða í búning í kvöld.

ÍSLAND (landsleikir í sviga)


Elvar Már Friðriksson · Derthona Basket, Ítalíu (73)
Haukur Helgi Briem Pálsson · Njarðvík (69)
Hörður Axel Vilhjálmsson · Keflavík (92)
Jón Axel Guðmundsson · Hakro Merlins Crailsheim, Þýskaland (19)
Kári Jónsson · Valur (25)
Ólafur Ólafsson · Grindavík (49)
Ragnar Ágúst Nathanaelsson · Stjarnan (56)
Sigtryggur Arnar Björnsson · Tindastóll (21)
Styrmir Snær Þrastarson · Davidson, USA (2)
Tryggvi Snær Hlinason · Basket Zaragoza, Spáni (51)
Þórir G. Þorbjarnarsson · Landstede Hammers, Hollandi (17)
Ægir Þór Steinarsson · Gipuzkoa Basket, Spáni (73)

Þjálfari: Craig Pedersen
Aðstoðarþjálfarar: Baldur Þór Ragnarsson og Hjalti Þór Vilhjálmsson

Aðrir leikmenn sem voru í æfingahóp:
Gunnar Ólafsson · Stjarnan
Hilmar Smári Henningsson · Haukar
Kristinn Pálsson · Grindavík
Hilmar Pétursson · Breiðablik

Fréttir
- Auglýsing -