spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 2023Þessir 12 leikmenn mæta Rúmeníu kl. 16:30 í Laugardalshöllinni 

Þessir 12 leikmenn mæta Rúmeníu kl. 16:30 í Laugardalshöllinni 

Íslenska landsliðið mætir Rúmeníu kl. 16:30 í Laugardalshöllinni í dag í öðrum leik nóvemberglugga síns í undankeppni EuroBasket 2023. Um er að ræða seinni leik Íslands gegn Rúmeníu í riðlakeppni mótsins, en fyrri leiknum tapaði Ísland ytra í spennuleik.

Umgjörðin í kringum leik dagsins er ekki af verri endanum, en í kl. 15:00 hefst körfuboltahátíð í Laugardalshöllinni, þar sem í boði verða körfuboltaþrautir, lukkuhjól, andlitsmálun, plötusnúður og eitthvað fleira til þess að hita upp fyrir leikinn.

Fyrir leik kvöldsins hefur Ísland tapað fyrstu þremur leikjum undankeppninnar á meðan að Rúmenía hefur unnið einn og tapað tveimur.

Hérna er heimasíða mótsins

Hér fyrir neðan má sjá hvaða 12 leikmenn munu leika fyrir Íslands hönd í kvöld:

Anna Ingunn Svansdóttir · Keflavík (3)

Ásta Júlía Grímsdóttir · Valur (7)

Dagbjört Dögg Karlsdóttir · Valur (13)

Dagný Lísa Davíðsdóttir · Fjölnir (5)

Diljá Ögn Lárusdóttir · Stjarnan (3)

Elísabeth Ýr Ægisdóttir · Haukar (5)

Eva Margrét Kristjánsdóttir · Haukar (3)

Hildur Björg Kjartansdóttir · BC Namur-Capitale, Belgíu (37)

Isabella Ósk Sigurðardóttir · Njarðvík

Sara Rún Hinriksdóttir · Faenza Basket Project, Ítalíu (27)

Tinna Guðrún Alexandersdóttir · Haukar (1)

Þóra Kristín Jónsdóttir · AKS Falcon, Danmörk (26)

Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil

Fréttir
- Auglýsing -