spot_img
HomeBikarkeppniÞessi lið verða í pottinum þegar dregið verður í Vísbikarnum nú eftir...

Þessi lið verða í pottinum þegar dregið verður í Vísbikarnum nú eftir hádegið – Drátturinn í beinni

Dregið verður í Vísbikarnum nú á kl. 14:00.

Leikdagar

Leikdagar í VÍS bikarnum 2021 eru eins og hér segir

16 liða úrslit kvenna: 21. apríl

8 liða úrslit kvenna: 24. apríl

Undanúrslit kvenna: 27. apríl

VÍS bikarúrslit kvenna: 1. maí 16:30 í Smáranum

16 liða úrslit karla: 22. apríl

8 liða úrslit karla: 25. apríl

Undanúrslit karla: 28. apríl

VÍS bikarúrslit karla: 1. maí 19:30 í Smáranum

Drátturinn verður svo að sjálfsögðu í beinni útsendingu hér fyrir neðan.

Þau lið sem verða í pottinum þegar dregið verður:

Vísbikar karla

Í VÍS bikar karla eru 21 lið skráð til leiks (Álftanes, Breiðablik, Fjölnir, Grindavík, Hamar, Haukar, Höttur, Hrunamenn, ÍR, Keflavík, KR, Njarðvík, Selfoss, Sindri, Skallagrímur, Stjarnan, Tindastóll, Valur, Vestri, Þór Ak. Þór Þ.). Drátturinn verður því þrískiptur karlamegin.

Vísbikar kvenna

Alls eru 16 lið skráð til leiks í VÍS bikar kvenna (Breiðablik, Fjölnir, Grindavík, Hamar-Þór, Haukar, ÍR, Keflavík, Keflavík b, KR, Njarðvík, Skallagrímur, Snæfell, Stjarnan, Tindastóll, Valur, Vestri), en dregið verður beint í 16 liða úrslit VÍS bikars kvenna. 16 liða úrslit VÍS bikars kvenna verða leikin miðvikudaginn 21. apríl, en dregið verður í 8 liða úrslit strax að kvöldi 21. apríl þegar ljóst er hvað 8 lið hafa tryggt sér sæti í 8 liða úrslitum.

Fyrirkomulag og dagsetningar keppninnar

Fréttir
- Auglýsing -