Nú er að mestu ljóst hvaða lið eru komin áfram í 16 liða úrslit Maltbikars karla og kvenna. Öllum leikjum utan eins er lokið í 32. liða úrslitum karla en 16 liða úrslitin verða fyrsta umferð kvennamegin.
Tíu úrvalsdeildarlið verða í hattinum er dregið verður í 16 liða úrslitum karla en Þór Þ og Stjarnan féllu úr leik í 32. liða úrslitum gegn öðrum úrvalsdeildarliðum. Eitt lið er úr 2. deild en það er KR b sem vann Vestra b í síðustu umferð. Einum leik er enn ólokið í 32. liða úrslitum en Njarðvík b mætir Skallagrím á fimmtudag.
Dregið verður í 16. liða úrslitum Maltbikarsins í dag kl 12:15 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Ljóst er að spennandi viðureignir eru framundan í 16. liða úrslitum.
Öll liðin sem verða í pottinum er dregið verður í 16 liða úrslitum eru hér að neðan:
Þessi lið eru komin áfram í 16 liða úrslit Maltbikars karla:
Grindavík
Haukar
Breiðablik
ÍR
Fjölnir
Tindastóll
Keflavík
Snæfell
Þór Ak.
Vestri
KR
Njarðvík
Valur
KR b
Höttur
Njarðvík B/Skallagrímur
Þessi lið eru komin áfram í 16 liða úrslit Maltbikars kvenna:
Breiðablik
Fjölnir
Grindavík
Haukar
ÍR
Keflavík
KR
Njarðvík
Skallagrímur
Snæfell
Stjarnan
Valur
Þór Ak.




