Riðlakeppni Eurobasket 2017 lauk í dag er C og D riðlarnir léku síðustu leikina. Nú hefst alvaran og þrátt fyrir að við íslendingar séum ekki með í útsláttarkeppninni er ljóst að framundan er algjör körfubolta veisla.
RÚV mun sýna beint frá öllum leikjum í útsláttarkeppninni á RÚV og RÚV 2. Margir stórleikir eru framundan og verður spennandi að sjá hvernig andstæðingum Íslands mun vegna í keppninni. Finnar mæta stórliði Ítalíu á laugardag og verður spennandi að sjá hversu mikið heimavöllurinn hafði áhrif á frábært gengi Finnlands.
Útsláttarkeppnin fer öll fram í Istanbúl í Tyrklandi en heimamenn rétt komust áfram í keppninni og endaði í fjórða sæti í D riðli.
Hér að neðan má sjá hvaða lið mætast í 16. liða úrslitum Eurobasket 2017:
Laugardagurinn 9. September
Slóvenía – Úkraína kl 09:30 í beinni á RÚV 2
Þýskaland – Frakkland kl 12:15 í beinni á RÚV
Finnland – Ítalía kl 15:45 í beinni á RÚV
Litháen – Grikkland kl 18:30 í beinni á RÚV 2
Sunnudagurinn 10. September
Lettland – Svartfjallaland kl 09:30 í beinni á RÚV 2
Serbía – Ungverjaland kl 12:15 í beinni á RÚV
Spánn – Tyrkland kl 15:45 í beinni á RÚV
Króatía – Rússland kl 18:30 í veinni á RÚV 2




