Ísland lauk keppni í Eilat í Ísrael fyrr í dag í 11. sæti B deildar 20 ára og yngri Evrópumóts þessa árs. Í fyrsta skiptið sem að Ísland sendir lið í mótið, en spennandi verður að sjá hvernig þeim mun ganga á þessum nýja vettvangi á komandi árum.
Eftir að hafa tapað öllum leikjum sínum í mótinu tókst þeim loks að ná í góðan sigur í síðasta leik í dag gegn Írlandi í hreinum úrslitaleik um 11. sæti mótsins.
Þegar litið er yfir tölfræði liðsins á mótinu kemur í ljós að Thelmu Dís Ágústsdóttir tókst að leiða liðið í öllum helstu þáttum. Á 32 mínútum spiluðum í leik skoraði hún 9 stig, tók 8 fráköst, gaf 3 stoðsendingar og stal 2 boltum. Þetta gaf henni 14 framlagsstig að meðaltali í leik, en miðað alla aðra leikmenn á mótinu var hún því 9. framlagshæst.
Leiðtogar í helstu tölfræðiþáttum.
Framlag:
Thelma Dís Ágústsdóttir – 13.9
Linda Róbertsdóttir – 7.7
Emelía Ósk Gunnarsdóttir – 6.9
Stig:
Thelma Dís Ágústsdóttir – 9.0
Emelía Ósk Gunnarsdóttir – 8.1
Þóra Kristín Jónsdóttir – 5.7
Fráköst:
Thelma Dís Ágústsdóttir – 8.3
Elín Sóley Hrafnkelsdóttir – 4.4
Linda Róbertsdóttir – 4.1
Stoðsendingar:
Thelma Dís Ágústsdóttir – 3.1
Emelía Ósk Gunnarsdóttir – 2.7
Þóra Kristín Jónsdóttir
Frekar má lesa um tölfræðina og mótið hér
Mynd / FIBA – Frá leik Íslands og Tékklands




