U-16 ára lið stúlkna lauk keppni á Norðurlandamótinu í Kisakallio í dag með 93-64 tapi gegn ósigruðum meisturum Finna.
Staða liðanna var ráðin fyrir leikinn; Finnar voru þegar búnir að tryggja sér titilinn og Ísland var fast í fjórða sætinu. Árangur íslenska liðsins á mótinu telst engu að síður ágætur þar sem þær skildu bæði Eistland og Svíþjóð eftir að baki sér í töflunni.
Hákon Hjartarson þjálfari liðsins fór yfir mótið í spjalli við Körfuna eftir leik í Kisakallio.




