Tindastóll og Njarðvík áttust við í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld. Þetta var annar leikur liðanna í 8 liða úrslitum Bónusdeildar kvenna en Njarðvík vann fyrri leikinn í IceMar höllinni síðastliðinn Þriðjudag. Sama niðurstaða varð í kvöld og sóttu Njarðvíkurstúlkur frekar öruggan 58-88 sigur.
Karfan var að sjálfsögðu á staðnum og spjallaði við Israel Martin þjálfara Tindastóls eftir leikinn.




