Hamar/Þór tók forystu í einvíginu gegn nágrönnum sínum í Selfossi með sannfærandi sigri í undanúrslitum fyrstu deildar kvenna, 96-70.
Heimaliðið lagði grunninn að sigrinum með frábærum þriðja leikhluta þar sem þær skoruðu 30 stig gegn aðeins 8 stigum gestanna. Mariana Duran fór fyrir sínum konum með 23 stig og Jadakiss Nashi Guinn bætti við 22 stigum og 7 stoðsendingum. Hjá Selfossi var Mathilde Boje Sorensen atkvæðamest með 22 stig og 9 fráköst. Hamar/Þór leiðir því 1-0, en þrjá sigra þarf til að tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu.
Karfan spjallaði við Berglindi Kareni Ingvarsdóttur þjálfara Selfoss eftir leik í Hveragerði.




