spot_img
HomeFréttirÞægilegt í Þorlákshöfn

Þægilegt í Þorlákshöfn

 

Þór frá Þorlákshöfn sigraði Snæfell fyrr í kvöld á heimavelli sínum með 110 stigum gegn 85. Eftir leikinn er þór í 2.-4. sæti deildarinnar á meðan að Snæfell eru í því 12.

 

 

Þáttaskil

Ljóst var frá fyrstu mínutu leiksins að það voru heimamenn sem ætluðu sér að fara með sigur í kvöld. Þeir náðu strax forrustu og héldu henni til leiksloka. Stigaskor dreifðist jafnt á lið Þórs á meðan að Sefton Barrrett dró vagninn að mestu einn síns liðs fyrir Snæfell

 

Hetjan

Þó að Sefton Barrett hafi ekki verið í sigurliðinu í kvöld, þá verður ekki litið fram hjá því að hann skoraði 35 stig tók 15 fráköst og gaf 5 stoðsendingar á þeim 35 mínútum sem hann spilaði.

Ragnar Bragason átti fínan leik fyrir Þór og kveikti í áhorfendum með troðslum sínum og fallegum þriggja stiga körfum, eins og fyrirliði liðsins Emil Karel sem átti góðan leik í kvöld. Mikið ánægðju efni var fyrri heimamenn að endurheimta Grétar Inga aftur, en hann er nýkominn til baka úr puttabroti, auk þess sem hann átti erfitt sumar á togaranum í sumar.

 

Tölfræðin

Ef litið er á tölfræðina sést að Snæfell er ekki að fá nema 13 stig af bekknum hjá sér á meðan að bekkur Þórs skoraði 51 stig. Ljóst er að fleiri leikmenn þurfa að leggja í púkkið og ekki víst að Barrett geti skorað 35 stig á hverju kvöldi í vetur.

 

Kjarninn.

Mikil getu munur er á liðinum og virkuðu Þórsarar mikið öruggari í öllum sínum aðgerðum. Þó er ekki annað hægt en að hrósa Snæfellingum sem spiluðu á köflum í fyrr hálfleik fínan körfubolta, en það dugði þó ekki að þessu sinni og urðu lokatölur 110-85, leikurinn varð nokkuð viltur í lokin, lítið um vörn og yngri leikmenn liðanna spreyttu sig, Benjamín Þorri skoraði síðustu stig Þórs og reis allt húsið úr sætum og klappaði fyrir þeim dáðadreng.

 

Tölfræði leiks

 

 

Umfjöllun Rúnar Gunnarsson

 

Fréttir
- Auglýsing -