KR-ingar sitja einir og taplausir á toppi Bónusdeildar karla í körfuknattleik eftir tuttugu stiga heimasigur á Hetti, 112–92, á Meistaravöllum í kvöld. Sigurinn er sá sjötti í röð hjá Vesturbæingum í upphafi tímabils og hafa þeir nú tólf stig á toppnum, á meðan Höttur situr í áttunda sæti með fjögur stig.
Gestirnir frá Egilsstöðum mættu gríðarlega ákveðnir til leiks og leiddu með tveimur stigum að loknum fyrsta leikhluta, 21–23. KR-ingar náðu undirtökunum í öðrum leikhluta og fóru með fimm stiga forskot inn í hálfleikshléið, 50–45. Í þriðja leikhluta var leikurinn í járnum og munaði aðeins fjórum stigum á liðunum fyrir lokafjórðunginn, 82–78. Þar settu heimamenn hins vegar í fluggír, unnu fjórða leikhlutann með sextán stiga mun, 30–14, og gerðu endanlega út um leikinn.
Skotnýting KR-inga í kvöld var til fyrirmyndar en liðið hitti úr 73 prósentum tveggja stiga skota sinna og setti niður sextán þriggja stiga körfur með 47 prósenta nýtingu. Þá gekk boltinn einstaklega vel á milli manna hjá heimamönnum sem gáfu alls 28 stoðsendingar gegn átján hjá Hetti.
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson átti stórleik fyrir KR og var maður leiksins eftir að hafa skorað 27 stig, tekið 6 fráköst og gefið 9 stoðsendingar á 32 mínútum, sem skilaði honum 39 framlagsstigum. Roberts Berzins skoraði 23 stig fyrir KR, Rafail Lanaras skilaði 20 stigum, 7 fráköstum og 5 stoðsendingum, Linards Jaunzems bætti við 19 stigum og 6 fráköstum, Adam Ramstedt skoraði 11 stig og Þorvaldur Orri Árnason skilaði 10 stigum.
Hjá Hetti var Adam Eiður Ásgeirsson stigahæstur með 19 stig. Joshua James Martin skilaði tvöfaldri tvennu með 15 stigum og 10 fráköstum, Nemanja Knezevic skoraði einnig 15 stig, Sveinn Búi Birgisson bætti við 13 stigum og þeir Aleksandar Pantelic og Marquis Jackson skoruðu 12 stig hvor.




