Telma B. Fjalarsdóttir verður ekki meira með Haukum á þessari leiktíð í Iceland Express deild kvenna sökum starfs síns og meiðsla. Áður en við slepptum Telmu alveg óbeislaðri út á vinnumarkaðinn fengum við hana til að rýna í næstu umferð í Iceland Express deild kvenna sem hefst í kvöld og lýkur annað kvöld.
KR – Hamar (Í kvöld kl. 19:15 í DHL-Höllinni)
Það er klárt mál að þetta verður hnífjafn leikur, spennandi að sjá hvernig nýji kaninn fittar inn í KR liðið. Ef Signý nær að stoppa Butler og Hildur og Kara verða í stuði þá mega Hamarsstelpur vara sig. Hinsvegar vita allir hvað fyrrum liðsfélagar mínir Kristrún og Slavica geta svo það þarf heldur betur að leggja sig fram við að stoppa þær. Tilfinningin mín er samt að þessi leikur verði fyrsti tapleikur Hamarsstúlkna í vetur.
Miðvikudagskvöld:
Haukar-Keflavík
Það hefur verið uppstig í leik Haukastelpnanna minna undanfarið þrátt fyrir að takturinn sé ekki orðinn eins fastur og þær vilja hafa hann. Keflavíkurstelpur eru hinsvegar búnar að vera að spila sem frábær liðsheild þar sem hver og einn leikmaður þekkir sitt hlutverk inn og út. Það er algjört lykilatriði að Haukastelpurnar trúi til að þetta verði spennandi!
Grindavík – Njarðvík
Njarðvík tekur þennan leik ef þær spila sinn leik.
Fjölnir – Snæfell
Snæfell hafa sagt upp báðum erlendu leikmönnum sínum og ekki fengið nýjan. Það eru alltaf viðbrigði og erfitt, ég held að Fjölnir taki þennan leik en ekki auðveldlega því Ingi Þór veit hvað hann syngur og Snæfellsstúlkur eru engin lömb að leika við.




