Tekur við U-liði Hauka

Hákon Hjartarson hefur verið ráðinn þjálfari U-liðs Hauka í 1. deild kvenna fyrir komandi tímabil. Haukar munu tefla fram ungu og efnilegu liði í deildinni og fá mikla reynslu í Hákon, sem mun stýra liðinu ásamt Stefaníu Ósk, nýráðnum þjálfara 12. flokks kvenna.

Hákon er reynslumikill þjálfari sem hefur undanfarin tímabil stýrt liði Hamars/Þórs, bæði í 1. deildinni og síðar í Bónusdeild kvenna, auk þess að hafa komið að þjálfun yngri landsliða Íslands. Hjá Haukum ríkir mikil ánægja með að fá Hákon til liðsins til þess að hjálpa unga leikmannahópnum að taka næstu skref.

Fréttir
- Auglýsing -