HomeNeðri deildir2. deild karlaTekur við fyrir vestan

Tekur við fyrir vestan

Vestri hefur ráðið Spánverjann Fernando Bethencourt Muñoz sem aðalþjálfara meistaraflokks karla og yfirþjálfara yngri flokka til næstu tveggja ára.

Muñoz kemur til Vestra með ríka alþjóðlega reynslu, en hann hefur meðal annars þjálfað á Spáni, Írlandi og í Lúxemborg, auk þess að hafa stýrt Tindastóli til bikarmeistara árið 2018.

Stjórn Vestra lýsir yfir miklum væntingum til komu Muñoz og þeirrar uppbyggingar sem fram undan er hjá félaginu. Við þessi tímamót lætur Birgir af störfum sem aðalþjálfari meistaraflokks og Reinis Vilks hverfur á braut til starfa erlendis.

Fréttir
- Auglýsing -