HomeBónus deildinBónus deild kvennaTekur við deildarmeisturunum

Tekur við deildarmeisturunum

Viktor Marinó hefur verið ráðinn nýr aðalþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Haukum. Hann tekur við starfinu af Emil Barja, en Viktor þekkir liðið og félagið inn og út eftir að hafa starfað sem aðstoðarþjálfari liðsins undanfarin tvö ár. Viktor á að baki langan feril við þjálfun eldri yngri flokka hjá bæði Stjörnunni og Haukum, auk þess að hafa stýrt yngri landsliðum Íslands. Hjá Haukum er litið á þetta sem stórt og verðskuldað skref fyrir þennan efnilega þjálfara.

Viktor sjálfur segir það mikinn heiður að fá að stýra liðinu, sem sé skipað hæfileikaríkum heimamönnum og reynslumiklum Haukakonum. Hann kveðst hafa óbilandi trú á hópnum og verkefninu, og bætir við að undirbúningurinn hefjist snemma þar sem liðið eigi inni frá síðasta tímabili. Þóra Kristín, leikmaður Hauka, lýsir yfir mikilli ánægju með ráðninguna og bendir á að Viktor muni byggja ofan á það flotta starf sem hann og Emil unnu að síðustu tvö ár. Hún segir leikmannahópinn mjög samstilltan og fullkomlega tilbúinn í komandi tímabil undir hans stjórn.

Fréttir
- Auglýsing -