ÍA hefur samið við Bjarka Þór Aðalsteinsson um að taka að sér starf búningastjóra félagsins ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.
Hjá ÍA ríkir mikil ánægja og spenna með að fá Bjarka inn í starfið en félagið lýsir honum sem gríðarlegum Skagamanni og býður hann hjartanlega velkominn til starfa.