Tekur við Álftanesi

Álftanes hefur ráðið Baldur Þór Ragnarsson sem nýjan aðalþjálfara meistaraflokks karla. Baldur kemur til liðsins með viðamikla reynslu en hann stýrði síðast liði Stjörnunnar til Íslandsmeistaratitils og hefur áður náð frábærum árangri með Þór Þorlákshöfn og Tindastól, þar sem hann var meðal annars valinn þjálfari ársins árið 2022, auk þess að hafa starfað sem aðstoðarþjálfari hjá Ratiopharm Ulm í Þýskalandi og íslenska karlalandsliðinu.

Huginn Freyr Þorsteinsson, fulltrúi Álftaness, segir ráðninguna mikinn happafeng sem styrki klúbbinn í þeirri vegferð sem hann er á.

Baldur segist sjálfur vera mjög spenntur fyrir því að taka við liðinu og hlakka til samstarfsins við leikmenn og fólkið í kringum félagið. Hann lítur á starfið sem spennandi verkefni þar sem ætlunin sé að byggja ofan á það flotta starf sem þegar hefur verið unnið á Álftanesi.

Fréttir
- Auglýsing -