spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaTekur við af Arnari sem afreksstjóri KKÍ

Tekur við af Arnari sem afreksstjóri KKÍ

Hörður Unnsteinsson mun taka við starfi Arnars Guðjónssonar hjá KKÍ sem afreksstjóri sambandsins. Tilkynnir sambandið aðildarfélögum sínum þetta í tölvupósti fyrr í dag.

Líkt og segir í pósti til félaga hefur Hörður gífurlega reynslu og þekkingu úr körfuknattleikshreyfingunni. Síðastliðin ár hefur hann þjálfað hjá KR og meðal annars meistaraflokk kvenna þar sem hann kom liðinu aftur í fremstu röð á síðasta tímabili, en hjá KR vann hann við uppbyggingu og þjálfun kvennflokka félagsins. Einnig hefur hann unnið hjá Sýn við umsjón á Körfuboltakvöldi Bónus deildar kvenna við góðan orðstýr og fleira tengt sjónvarpsútsendingum þar.

Hörður mun hefja störf á skrifstofu sambandsins í byrjun ágúst.

Samkvæmt færslu Harðar á samfélagsmiðlum mun hann ekki halda áfram með Körfuboltakvöld kvenna. Hann mun þó ekki alveg hafa skilið við sjónvarpið að fullu, en í samtali við Körfuna staðfesti Hörður að hann muni að öllum líkindum sinna einhverjum sjónvarpsverkefnum tengdum deildunum á komandi tímabili.

Fréttir
- Auglýsing -