Birgir Leó Halldórsson verður áfram í Sindratreyjunni og tekur slaginn með Höfn í Hornafirði í Bónusdeild karla á komandi tímabili.
Birgir Leó er uppalinn Sindramaður og var í mikilvægu hlutverki á síðustu leiktíð þegar liðið vann sér sæti í efstu deild. Hann átti jafnframt frábært sumar með U20 landsliði Íslands sem vann til silfurverðlauna á Evrópumótinu og tryggði sér sæti í A-deild.
Hjá Sindra ríkir mikil ánægja og spenna með að halda Birgi Leó innan sinna raða fyrir átökin á stærsta sviðinu í vetur.




