Grindavík hefur endursamið við Farhiya Abdi fyrir komandi tímabil.
Farhiya var í lykilhlutverki á síðasta tímabili þar sem hún skilaði 15,7 stigum, 6,2 fráköstum og 4,1 stoðsendingu að meðaltali í leik. Hún er samkvæmt tilkynningu félagsins gríðarlega fjölhæfur leikmaður og mikilvægur karakter í leikmannahópnum.
Að sögn Farhiya á hún óklárað verkefni í Grindavík og er markmiðið skýrt – að halda áfram því sem byrjað var á og fara með liðið alla leið.




