Reynsluboltinn Obie Trotter hefur gert nýjan eins árs samning við Hött og mun næsta keppnistímabil verða hans síðasta á farsælum ferli.
Það ríkir mikil ánægja innan klúbbsins með að tryggja krafta hans áfram og að hann hafi ákveðið að kveðja íþróttina í þessum herbúðum. Hann kom til liðsins haustið 2022 og hefur verið í fremstu röð og spilað lykilhlutverk síðan þá.




