Helena Sverrisdóttir og TCU áttu ekki í vandræðum aðfararnótt fimmtudags þegar liðið heimsótti Wyoming skólann í bandarísku háskóladeildinni í körfuknattleik. TCU hafði öruggan sigur í leiknum, 47-68. Helena gerði 8 stig í leiknum, tók 7 fráköst, gaf 3 stoðsendingar, varði 2 skot og stal 2 boltum á 33 mínútum í leiknum.
Næsti leikur TCU er gegn Colorado State sem unnið hefur 1 leik og tapað 1 leik í MWC riðlinum en TCU hefur unnið þrjá fyrstu leiki sína.
María Ben Erlingsdóttir og félagar í UTPA máttu sætta sig við fjórða ósigurinn sinn í röð þegar liðið lá 68-60 gegn New Jersey Institute of Technology. Að þessu sinni var María í byrjunarliðinu og lék í 27 mínútur. Hún gerði 6 stig, tók 5 fráköst og var með 1 varið skot. Leikurinn var sá fyrsti hjá UTPA í Great West Conference riðlinum og því hóf liðið riðlakeppnina með tapi. UTPA hefur nú leikið fjóra útileiki í röð og leikur fjóra leiki á útivelli til viðbótar áður en liðið kemst á heimavöll.




