HomeFréttirTCU á góðu róli: Maryland og UTPA töpuðu um helgina

TCU á góðu róli: Maryland og UTPA töpuðu um helgina

 
Maryland átti ekki erindi sem erfiði gegn Villanova skólanum um helgina. Maryland mátti sætta sig við 74-66 ósigur á útivelli þar sem Haukur Helgi Pálsson lék í 8 mínútur. Haukur skoraði 2 stig í leiknum, tók 2 fráköst og gaf 2 stoðsendingar. Næsti leikur Maryland er á heimavelli gegn Virginia Tech þann 20. janúar. Leikurinn gegn Villanova var sá þriðji hjá Maryland í ACC riðlinum og því hefur Maryland tapað 2 af fyrstu 3 leikjum sínum.
Helena Sverrisdóttir og TCU unnu sinn fimmta leik í röð á laugardag þegar Colorado State kom í heimsókn í Daniel-Meyer Coliseum. Lokatölur leiksins voru 66-40 TCU í vil þar sem Helena Sverrisdóttir gerði 9 stig, stal 6 boltum, tók 3 fráköst og gaf 3 stoðsendingar á 25 mínútum. TCU eru því á toppi MWC riðilsins með fjóra sigra en ekki langt undan er BYU skólinn með þrjá sigra.
 
Lítið gengur hjá Maríu Ben Erlingsdóttur og UTPA um þessar mundir en á laugardag tapaði liðið sínum fimmta leik í röð. Að þessu sinni heimsótti UTPA Chicago State á útivöll þar sem lokatölur voru 86-61 Chicago í vil. María, sem var í byrjunarliðinu í síðasta leik, kom inn af bekknum að þessu sinni og fékk að reyna sig í 6 mínútur. Á þeim tíma tók hún eitt frákast en náði ekki að skora. UTPA er því búið að tapa tveimur fyrstu leikjunum sínum í GWC riðlinum.
 
Huntsville Chargers, lið Árna Ragnarssonar, unnu góðan sigur um helgina á útivelli þegar liðið lagði Valdosta State á útivelli í bandarísku 2. deildinni í háskólakörfubolta. Árni var ekki í liði Chargers að þessu sinni en hann hefur verið afar óheppinn með meiðsli þessa leiktíðina.
 
Mynd/ Helena og félagar í TCU eru á góðu róli um þessar mundir.
 
Fréttir
- Auglýsing -