spot_img
HomeFréttirTaylor Rochestie : áttum mjög erfiðan leik í fyrri hálfleik

Taylor Rochestie : áttum mjög erfiðan leik í fyrri hálfleik

Taylor Rochestie reyndist of stór biti fyrir Íslenska liðið þegar þeir fengu Svarfjallaland í heimsókn í Laugardalshöllina í dag.  Taylor skoraði 31 stig, þar af 29 þeirra í seinni hálfleik.  Þá setti hann niður 4 af 5 skottilraunum sínum fyrir utan þriggja stiga í seinni hálfleik.  Taylor var að vonum ánægður með sigurinn og sagði liðið hafa átt mjög erfiða fyrri hálfleik.  
 Það er auðvita mjög góð tilfinning að vinna, við áttum mjög erfitt í fyrri háflleik.  Við komum hins vegar saman sem lið.  Við áttum í erfiðleikum með að finna okkur, við spiluðum ekki nægilega kraftmikið og við vorum að lenda í villuvandræðum.  Við skiptum okkur og mikið af dómurunum og það er eitthvað sem góð lið meiga ekki gera.    Í seinni hálfleik tókst okkur að spila okkar leik, skotin voru að detta og við spiluðum góða vörn.  

 

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -