HomeFréttirTap í skemmtilegum leik

Tap í skemmtilegum leik

21:22

{mosimage}
(Petrúnella í leiknum í kvöld)

Íslensku stelpurnar töpuðu með 25 stig mun fyrir Slóveníu í kvöld á Ásvöllum 69-94. Þær íslensku áttu fullt erindi í leikinn og minnkuðu muninn í 11 stig í fjórða leikhluta. En nær komust þær ekki og þær slóvensku höfðu sigur.

Hjá Íslandi var Helena allt í öllu með 18 stig, 12 fráköst og 9 stoðsendingar og næst henni kom Signý Hermannsdóttir með 11 stig og 9 fráköst.

Hjá Slóveníu skoraði Mojca Markovic 22 stig.

Næsti leikur íslensku stelpnanna er gegn Írlandi á laugardag.

[email protected]

Mynd: [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -