Hamar/Þór mun halda sæti sínu í Bónus deild kvenna á næstu leiktíð. Tilkynnir félagið þetta á samfélagsmiðlum nú í kvöld.
Hamar/Þór hafði fallið eftir umspil við fyrstu deildar lið KR, en vegna brotthvarfs Þórs Akureyri var félaginu boðið að halda samt áfram í Bónus deildinni. Samkvæmt félaginu munu þær því áfram tefla fram liði í efstu deild.
Tilkynningu félagsins má lesa hér fyrir neðan.