HomeFréttirTaka á móti sterku liði Tyrklands í Laugardalshöll í kvöld

Taka á móti sterku liði Tyrklands í Laugardalshöll í kvöld

Íslenska karlalandsliðið mætir í kvöld öflugu liði Tyrklands í Laugardalshöll í undankeppni HM 2027.

Um er að ræða seinni leik liðsins í þessum fyrsta glugga keppninnar, en strákarnir okkar leita nú svara eftir tap gegn sterku liði Serbíu í Belgrad fyrir helgi. Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19:30 og er mikilvægt tækifæri fyrir íslenska liðið til að ná í dýrmæt stig á heimavelli.  

Verkefnið verður hins vegar ærið því tyrkneska liðið er gífurlega vel mannað og situr á toppi riðilsins eftir frábæra frammistöðu í fyrri hluta undankeppninnar, þar sem liðið vann alla sex leiki sína. Tyrkir mæta því fullir sjálfstrausts til leiks á mikilli sigurgöngu og ljóst er að íslenska liðið þarf að eiga toppleik gegn einu sterkasta liði Evrópu.

Stuðningur áhorfenda í Laugardalshöll mun skipta sköpum í kvöld og fer miðasala á leikinn fram í gegnum appið Stubb. Fyrir þá sem ekki eiga heimangengt verður viðureignin sýnd í beinni útsendingu á RÚV.

Hérna er heimasíða mótsins

Fréttir
- Auglýsing -