Ljósmyndarinn Gunnar Gunnarsson var réttur maður á réttum stað þegar Ólafur Ólafsson FI-415 hóf sig til flugs í síðustu umferð Iceland Express deildar karla. Ólafur var snöggur upp völlinn í einni Grindavíkursókninni gegn ÍR og Gunnar ljósmyndari var með fingurinn á gikknum.



