Breiðablik tryggði sér sæti í úrslitaeinvígi 1. deildar karla með naumum en gríðarlega mikilvægum sigri á KV, 92–90.
Leikurinn var mikil spennusaga þar sem Blikar virtust vera með öruggt tak á verkefninu eftir frábæran þriðja leikhluta, en leikmenn KV sýndu mikið harðfylgi og unnu lokaleikhluta leiksins með heilum 18 stigum. Þrátt fyrir áhlaupið tókst Breiðabliki að knýja fram sigurinn og klára einvígið á sannfærandi hátt, en liðið vann viðureignina samanlagt 3–0.
Karfan spjallaði við Jere Antila þjálfara KV eftir leik í Smáranum.
Viðtal / Ingimar Ólafsson






